Guðrún Helgadóttir
(andsvar)
:
Herra forseti. Þetta er einnig áhugavert. Ég mun að sjálfsögðu ræða við Eimskipafélagsmenn um þetta mál. Það væri gaman að heyra hvaða skoðun þeir hafa á því hvaða áhrif það hefur á rekstur félags þeirra að skip þeirra sem sigla undir þægindafána komast ekki til landa Evrópska efnahagssvæðisins. Ég held að þetta sé eitthvað málum blandað, en við skulum ekki eyða tíma í það núna. Ég þakka hv. 16. þm. Reykv. fyrir að hreyfa þessu máli.