Sveitarstjórnarlög

121. fundur
Fimmtudaginn 04. mars 1993, kl. 13:59:49 (5616)

     Flm. (Kristinn H. Gunnarsson) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Það þarf ekki nema hálfa mínútu til þess að draga fram pólitískan veruleika málsins. Skýrslan er samin samkvæmt bréfi frá hæstv. forsrh. þar sem hann felur stofnuninni og stjórn að vinna að henni. Ég get gefið hv. þm. ljósrit af þessu bréfi forsrh. þar sem fyrirmælin eru gefin. Þau eru gefin þannig að svæðaskiptingin í þessari nýju byggðaáætlun ríkisstjórnarinnar er sú sama og notuð er í sveitarfélagaskýrslunni sem ég hef aldrei skrifað upp á.