Umhverfisskattar

127. fundur
Fimmtudaginn 11. mars 1993, kl. 19:12:50 (6022)


     Flm. (Árni M. Mathiesen) (andsvar) :
    Frú forseti. Ég sé nú alls ekki að það þurfi að stangast á nokkurn hátt á við EES-samninginn að taka upp umhverfisskatta eins og hv. 4. þm. Austurl. hefur nefnt hérna. Það er ekki langt síðan mikil umræða varð einmitt um það innan Evrópubandalagsins að taka upp slíka skattheimtu í verulega miklum mæli þannig að ég sé alls ekki að það sé nein þverstæða þarna á milli.