![](http://www.althingi.is/myndir/althlit.gif)
Hæstv. forseti. Flestir starfsmanna Sementsverksmiðjunnar eru á ráðningarkjörum hins almenna vinnumarkaðar og missa því einskis við þessar breytingar. Þeir sem eru aðilar að Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins halda rétti sínum þar til fulls og sambærilegt starf fá þeir í öllum venjulegum skilningi þeirra orða.