Húsnæðisstofnun ríkisins

170. fundur
Miðvikudaginn 05. maí 1993, kl. 14:04:10 (7877)

     Kristinn H. Gunnarsson :
    Virðulegi forseti. Það hefur verið gerð grein fyrir því í umræðum sem ég vil ítreka að með ákvæðum 6. gr. er verið að fela hæstv. ráðherra í raun skattlagningarvald sem er langt umfram það sem þingið hefur talið við hæfi að framselja til framkvæmdarvaldsins og ég segi því nei.