Framhald þingfundar

176. fundur
Laugardaginn 08. maí 1993, kl. 21:29:17 (8466)

     Kristinn H. Gunnarsson :
    Virðulegi forseti. Ef það er svo að ætlunin er að greiða atkvæði um annarrar umræðu mál mál á næsta fundi þá vil ég vekja athygli forseta á því að verði þau samþykkt í 2. umr. þá mun þurfa enn einn fund til þess að ljúka endanlegri afgreiðslu þeirra frá 3. umr. Og ég spyr því forseta: Er það hugmynd forseta að halda hér tvo fundi til viðbótar?