Kaup á björgunarþyrlu

45. fundur
Þriðjudaginn 03. nóvember 1992, kl. 15:39:49 (1788)

     Kristinn H. Gunnarsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég skal ekki standa mjög fast á því að veikleikinn liggi í Alþfl. Ég hef svo sem ekkert yfirþyrmandi sannfæringu fyrir því að Sjálfstfl. sé heill í þessu máli. Hitt þykir mér illt ef þær grunsemdir læðast að þingmönnum að það sé ekki sama hver flutningsmaðurinn er úr röðum sjálfstæðismanna. Þá hygg ég að það sé orðið lítið eftir af því að heita sjálfstæðismaður ef menn mega ekki hafa sjálfstæðar skoðanir í Sjálfstfl. Ég velti því fyrir mér hvaða nafn menn ætla að gefa þvílíkum flokki.