Jóhann Ársælsson
(andsvar)
:
Virðulegi forseti. Það er nefnilega vandinn að vegna gengisfellingarinnar og annarra breytinga sem hafa orðið verður ógerlegt að fylgjast með því að vöruverð lækki í kjölfarið á þessari breytingu. Það er sá vandi sem við stöndum frammi fyrir. Það hefði þurft að slíta þessa breytingu úr samhengi við gengisfellingu. Það er enginn vafi.