Evrópskt efnahagssvæði

84. fundur
Fimmtudaginn 17. desember 1992, kl. 01:06:07 (3672)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Ég held að forsætisnefndin geri sér alveg grein fyrir því að fyrirhugað er að halda hér áfram með þennan fund. Það hafa ekki verið sett tímamörk á það, hvorki af forseta né öðrum en hins vegar er forseta kunnugt um að það stendur fyrir dyrum að formenn allra þingflokka tali saman og sá fundur er fyrirhugaður innan tíðar eftir því sem forseti hefur komist næst.