Halldór Ásgrímsson
:
Virðulegur forseti. Við hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon, 4. þm. Norðurl. e., og hv. 6. þm. Norðurl. e., Jóhannes Geir Sigurgeirsson undirrituðum nál. með fyrirvara. Við stöndum að máli þessu eins og það er flutt hér og hv. frsm. hefur gert grein fyrir og styðjum þær brtt. sem hann hefur gert grein fyrir. Fyrirvari okkar varðar málsmeðferð þessa máls á sl. sumri. Ég sé ekki ástæðu til að gera frekari grein fyrir því en vísa til umræðna og þeirra yfirlýsinga sem liggja fyrir af okkar hálfu varðandi það mál.