Ferill 247. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
116. löggjafarþing 1992–1993.
Nr. 4/116.
Þskj. 575 — 247. mál.
Þingsályktun
um samning milli Íslands, Noregs og Grænlands/Danmerkur um loðnustofninn á hafsvæðinu milli Íslands, Jan Mayen og Grænlands.
Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að staðfesta fyrir Íslands hönd samning milli Íslands, Noregs og Grænlands/Danmerkur um loðnustofninn á hafsvæðinu milli Íslands, Jan Mayen og Grænlands sem undirritaður var í Kaupmannahöfn 25. júní 1992.
Samþykkt á Alþingi 22. desember 1992.