Ferill 324. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1992–93. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. –
324
. mál.
592. Fyrirspurn
til fjármálaráðherra um greiðslur vegna þinga eða funda ýmissa starfsstétta.
Frá Guðmundi Hallvarðssyni.
Hve há fjárhæð hefur verið greidd úr ríkissjóði vegna þinghalds eða funda ýmissa starfsstétta á sl. fjórum árum?
Hvernig skiptist fjárhæðin á milli starfsstétta, eftir árum?
Eftir hvaða reglum er farið? Hvað fær hver þingfulltrúi eða fundarmaður greitt á dag? Hvað annað er greitt?