Ferill 367. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992–93. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 367 . mál.


648. Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um innheimtu virðisaukaskatts og staðgreiðslu opinberra gjalda.

Frá Árna M. Mathiesen.



    Hvernig metur ráðherra reynsluna af upptöku staðgreiðslu opinberra gjalda og virðisaukaskatts með tilliti til innheimtuárangurs?
    Hvernig hyggst ráðherra bregðast við gagnrýni Ríkisendurskoðunar og yfirskoðunarmanna ríkisreiknings á framkvæmd innheimtumála, sbr. skýrslu þessara aðila við endurskoðun ríkisreiknings 1991?


Skriflegt svar óskast.