Ferill 434. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992–93. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 434 . mál.


734. Fyrirspurn



til viðskiptaráðherra um skipan samkeppnisráðs.

Frá Steingrími J. Sigfússyni.



    Hverjar eru helstu ástæður þess að ráðherra kaus að skipa framkvæmdastjóra Vinnuveitendasambands Íslands einn fimm aðalmanna í samkeppnisráð?
    Óttast ráðherra ekki að álitamál kunni að rísa um hæfi framkvæmdastjórans, sbr. ákvæði 1. mgr. 6. gr. laganna um að ráðsmenn skuli vera „óháðir fyrirtækjum eða samtökum sem lögin taka til“?