Ferill 533. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992–93. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 533 . mál.


891. Tillaga til þingsályktunar


um fullgildingu samnings um verndun villtra plantna og dýra og lífsvæða Evrópu.

(Lögð fyrir Alþingi á 116. löggjafarþingi 1992–93.)


    Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að fullgilda fyrir Íslands hönd samning um verndun villtra plantna og dýra og lífsvæða í Evrópu sem gerður var í Bern 19. september 1979.

Athugasemdir við þingsályktunartillögu þessa.

    Með þingsályktunartillögu þessari fer ríkisstjórnin þess á leit að Alþingi heimili fullgildingu samningsins um verndun villtra plantna og dýra og lífsvæða í Evrópu sem gerður var fyrir tilstilli Evrópuráðsins í Bern 19. september 1979. Samningurinn er birtur sem fskj. I með þingsályktunartil lögu þessari.
    Markmið samningsins er að vernda evrópskar tegundir villtra plantna og dýra og lífsvæði þeirra. Sérstök áhersla er lögð á tegundir sem hætt eru komnar eða eru fágætar. Samningurinn hefur að geyma almenn ákvæði um náttúruvernd og sérstök ákvæði um friðun eða verndun þeirra tegunda sem skráðar eru í viðaukum I til III. Auk þess eru ákvæði um veiðiaðferðir sem tilgreindar eru í við auka IV.
    Gerist Ísland aðili að samningnum verður að gera nokkra fyrirvara við hann vegna íslenskra laga og íslenskra aðstæðna. Þessir fyrirvarar eru birtir í fskj. II með þingsályktunartillögu þessari. Þess ber að geta að fyrir Alþingi liggur frumvarp um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum, öðrum en hvölum. Við undirbúning frumvarpsins var tekið mið af ákvæðum Bernar samningsins.
    Hér á eftir verður gerð grein fyrir meginefni viðauka og ákvæða er þá varða.
    Viðauki I er skrá yfir 475 tegundir háplantna og 26 tegundir mosa sem eru friðaðar samkvæmt samningnum. Aðilar að samningnum skulu friða þessar tegundir og tryggja að vaxtarstaðir þeirra njóti sérstakrar verndar, sbr. 5. og 4. gr. Aðeins þrjár þessara tegunda vaxa á Íslandi með vissu. Tvær þessara tegunda, davíðslykill (Primula egaliksensis) og dvergtungljurt (Botrychium simplex ), eru mjög sjaldgæfar hér á landi og því friðaðar. Davíðslykill vex aðeins á einum stað hérlendis svo vitað sé og er í mikilli útrýmingarhættu að mati sérfræðinga. Ísland er reyndar eini vaxtarstaður plöntunnar sem þekktur er í allri Evrópu, en aðalútbreiðsla tegundarinnar er í Ameríku. Þriðja teg undin er gullbrá (Saxifraga hirculus), en hún er algeng í mýrum, einkum inn til landsins. Þessi teg und er ekki friðuð hér á landi enda ekki ástæða talin til þess. Gera þarf fyrirvara við samninginn af hálfu Íslands um þessa tegund.
    Viðauki II er skrá yfir þær tegundir dýra sem aðilar að samningnum skuldbinda sig til þess að friða nema gerðir séu sérstakir fyrirvarar um annað, sbr. 6., 10. og 22. gr. Friðun fuglategunda tekur einnig til eggjatöku. Aðilum samningsins ber jafnframt að tryggja að lífsvæði þessara tegunda njóti verndar, einkum fengi- eða varpstaðir og viðkomu- eða hvíldarstaðir, sbr. 4. gr.
    Í skránni eru 30 tegundir íslenskra varpfugla og reglulegra fargesta sem eru nú þegar friðaðar allt árið á Íslandi samkvæmt lögum um fuglaveiðar og fuglafriðun, nr. 33/1966, en það eru himbrimi (Gavia immer), flórgoði (Podiceps auritus), sjósvala (Oceanodroma leucorhoa), stormsvala (Hydrobates pelagicus), skrofa (Puffinus puffinus), álft (Cygnus cygnus), æðarkóngur (Somateria spectabilis), straumönd (Histrionicus histrionicus), húsönd (Bucephala islandica), haförn (Haliaet us albicilla), fálki (Falco rusticolus), smyrill (Falco columbarius), sandlóa (Charadrius hiaticula), tildra (Arenaria interpres), flóastelkur (Tringa glareola), sendlingur (Calidris maritima), lóuþræll (Calidris alpina), sanderla (Calidris alba), þórshani (Phalagropus fulicarius), óðinshani (Phalaropus lobadus), kría (Sterna paradisaea), snæugla (Nyctea scandiaca), brandugla (Asio flammeus), land svala (Hirundo rustica), maríuerla (Motacilla alba), þúfutittlingur (Anthus pratensis), músarindill (Troglodytes troglodytes), steindepill (Oenanthe oenanthe), snjótittlingur (Plectrophenax nivalis) og auðnutittlingur (Carduelis flammea). Takmörkuð eggjataka í kríuvarpi er þó heimil hér á landi og leyfilegt er að taka húsandaregg úr hreiðrum sé þeirri reglu fylgt að skilja minnst fjögur egg eftir í hverju hreiðri. Gera þarf fyrirvara við samninginn af hálfu Íslands um töku eggja frá kríu og hús önd hérlendis.
    Samkvæmt íslenskum lögum er heimilt að veiða tvær fuglategundir sem skráðar eru í viðauka II, lóm (Gavia stellata) og helsingja (Branta leucopsis), og þyrfti að gera fyrirvara um þær að óbreyttum lögum um fuglaveiðar og fuglafriðun.
    Í viðauka II eru taldar upp margar tegundir hvala. Það er stefna íslenskra stjórnvalda að sjávar spendýr beri að nýta á sjálfbæran hátt, jafnt og aðrar lifandi auðlindir hafsins. Því er nauðsynlegt af Íslands hálfu að gera fyrirvara um allar hvalategundir sem finnast hér við land. Slíkir fyrirvarar verða samkvæmt ákvæðum 22. gr. samningsins aðeins gerðir í upphafi eða þegar nýjar dýrategundir eru teknar upp í viðauka. Því verður fyrirvarinn nú að ná til allra hvalategunda, einnig þeirra fjög urra tegunda sem nú eru friðaðar samkvæmt reglugerð nr. 163/1973 um hvalveiðar. Ástand ein stakra stofna verður síðan að ráða því hvenær rétt þykir af Íslands hálfu að nýta hvern stofn.
    Þá eru í þessum viðauka sex tegundir íslenskra spendýra sem ekki eru friðaðar á Íslandi og þarf að gera fyrivara um þær. Þessi dýr eru tófa (Alopex lagopus), háhyrningur (Orcinus orca), grind hvalur (Globicephala melaena), hnísa (Phocaena phocaena), andarnefja (Hyperoodon rostratus) og hnýðingur (Lagenorhynchus albirostris). Auk þess eru í viðaukanum 4 tegundir sem flækjast stöku sinnum til landsins. Þær eru ísbjörn (Thalarctos maritimus), höfrungur (Delphinus delphis), stökk ull (Tursiops truncatus) og leiftur (Lagenorhynchus acutus). Dýr þessi eru ekki friðuð samkvæmt íslenskum lögum og verður því að gera fyrirvara við samninginn vegna þessara tegunda.
    Viðauki III er skrá yfir dýrategundir sem eru verndaðar, sbr. 7. og 10. gr. Veiði þessara tegunda er heimiluð en henni skal stjórnað þannig að þessum tegundum sé ekki stofnað í hættu. Samningsað ilar eru skuldbundnir til þess að vernda þær dýrategundir sem upp eru taldar í þessum viðauka og forða þeim frá útrýmingu með lagalegum og stjórnunarlegum ráðstöfunum.
    Í viðauka III eru allar fuglategundir sem ekki eru nefndar í viðauka II, að 11 tegundum undan skildum. Aðeins tvær íslenskar tegundir, sem falla undir viðauka III, njóta ekki verndar samkvæmt íslenskum lögum, en það eru hrafn (Corvus corax) og kjói (Stercorarius parasiticus) sem veiða má allt árið samkvæmt lögum um fuglaveiðar og fuglafriðun, nr. 33/1966. Þessar tegundir ættu sam kvæmt samningnum að hljóta vernd og þarf því að gera fyrirvara við hann vegna þeirra.
    Af þeim 11 tegundum, sem undanskildar eru í viðaukanum, eru fjórar íslenskar. Ein þeirra, stari (Sturnus vulgaris), er friðuð samkvæmt lögum um fuglaveiðar og fuglafriðun, en hinar þrjár, silfur máfur (Larus argentatus), sílamáfur (Larus fuscus) og svartbakur (Larus marinus), eru ekki friðaðar á Íslandi.
    Í viðauka III eru einnig allar hvalategundir sem finnast við Ísland, aðrar en þær sem nefndar eru í viðauka II yfir friðuð dýr. Landselur og útselur eru einnig í skránni, auk nokkurra selategunda sem stundum flækjast til landsins. Það er ekkert sem mælir á móti því að Íslendingar skuldbindi sig til að vernda þessar tegundir, enda má nytja þær á hefðbundinn hátt samkvæmt Bernarsamningnum.
    Í viðauka IV eru ákvæði þar sem lagt er bann við tilteknum dráps- og veiðiaðferðum. Meðal ann ars er bannað að nota eitur og svefnlyf við veiðar. Einnig er bann lagt við því að elta uppi og veiða dýr á vélknúnum ökutækjum og bannað er að svæla út dýr með gasi eða reyk. Þá eru í viðaukanum ákvæði um gerð skotvopna sem notuð eru til veiða. Sumar þær veiðiaðferðir, sem taldar eru upp í viðauka IV, eru notaðar hér á landi við veiðar á dýrum sem valdið geta tjóni eins og t.d. þær aðferðir sem tíðkaðar hafa verið frá fornu fari við að svæla ref úr greni.
    Í 9. gr. Bernarsamningsins er kveðið á um að veita megi undanþágur frá banni við notkun þess ara veiðiaðferða finnist engin önnur viðunandi lausn og undanþágan stefni viðkomandi dýrastofni ekki í útrýmingarhættu. Það er því ástæðulaust að gera fyrirvara við einstök atriði í viðauka IV. Samningsaðilum ber að gefa fastanefnd þeirri, sem stofnuð er skv. 13. gr. samningsins, skýrslu ann að hvert ár um veittar undanþágur.


Fylgiskjal I.


SAMNINGUR

um verndun villtra plantna og dýra og

lífsvæða í Evrópu.

(Bern, 19. september 1979.)


(Tölvutækur texti ekki til.)




Fylgiskjal II.


Fyrirvarar Íslands við Bernarsamninginn.


    Með tilvísun til 1. mgr. 22. gr. samningsins gerir Ísland fyrirvara um ákveðnar tegundir sem tilgreindar eru í viðaukum I-III. Eftirfarandi fyrirvarar eru gerðir:

1.      Gerður er fyrirvari við samninginn um friðun á gullbrá ( Saxifraga hirculus).
2.      Gerður er fyrirvari við samninginn um töku eggja frá kríu ( Sterna paradisaea) og húsönd ( Bucephala islandica).
3.      Gerður er fyrirvari við samninginn um friðun á lómi ( Gavia stellata) og helsingja ( Branta leucopsis).
4.      Gerður er fyrirvari við samninginn um friðun á tófu ( Alopex lagopus) og eftirfarandi hvalategundum: Háhyrningi ( Orcinus orca), grindhval ( Globicephala melaena), hnísu ( Phocaena phocaena), andarnefju ( Hyperoodon rostratus), hnýðingi ( Lagenorhynchus albirostris), steypireyð ( Sibbaldus musculus), hnúfubak ( Megaptera novaengliae), sléttbak ( EubaIaena glacialis) og norðhval ( Balaena mysticetus):
5.      Gerður er fyrirvari við samninginn um friðun á ísbirni ( Thalarctos maritimus) og eftirfarandi hvalategundum: Höfrungi ( Delphinus delphis), stökkli ( Tursiops truncatus) og leiftri ( Lagenorhynchus acutus)
6.      Gerður er fyrirvari við samninginn um hrafn ( Corvus corax) og kjóa ( Stercorarius parasiticús).