Ferill 556. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1992–93. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 556 . mál.
923. Tillaga til þingsályktunar
um útsendingar sjónvarps og útvarps til fiskimiða.
Flm.: Guðjón Guðmundsson, Guðmundur Hallvarðsson,
Eggert Haukdal, Sturla Böðvarsson.
Alþingi ályktar að fela menntamálaráðherra að láta gera könnun á þeim kostum sem í boði eru til að bæta útsendingar sjónvarps og útvarps til fiskimiðanna kringum landið með hliðsjón af þeirri tækniþróun sem orðið hefur á sviði ljósvakamiðlunar.
Greinargerð.
Móttökuskilyrði sjónvarps eru mjög misjöfn á fiskimiðunum umhverfis landið. Þau eru allgóð frá Faxaflóa austur að Ingólfshöfða, afleit út af Austurlandi og gloppótt fyrir Norðurlandi, VestMóttökuskilyrði útvarps eru einnig mjög misjöfn. Langbylgja heyrist víðast hvar, þó illa út af Vestfjörðum og á Breiðafirði. Miðbylgja heyrist út af Norðausturlandi, Austfjörðum og Suðaustur
Það er tvímælalaust mikið öryggismál að bæta sendingar útvarps til fiskimiðanna. Farsíminn virkar þar sem sjónvarp næst og heldur víðar. Þegar hann virkar ekki er eina sambandið við land í gegnum talstöð. Ef hún bilar er ekkert samband hægt að hafa í land og ekki hægt að fylgjast með að
Tækniþróun á sviði sjónvarps og útvarps er mjög ör. Á síðustu árum hefur fleygt fram gervi
Ekki skal á það lagður dómur hverjir kostir eru vænlegastir, en með hliðsjón af því hve tækni á þessu sviði hefur fleygt fram telja flutningsmenn fyllstu ástæðu til að íslensk stjórnvöld láti hið fyrsta fara fram athugun á því hvaða leiðir eru hagkvæmar til bóta í þessum efnum.
Fylgiskjal.
Sjónvarpsskilyrði á fiskimiðunum umhverfis landið.
(Kort ekki tiltækt.)