Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1043, 116. löggjafarþing 209. mál: geymslufé (almenn heimild).
Lög nr. 57 7. maí 1993.
Hver sá, sem inna á af hendi peningagreiðslu en fær ekki greitt kröfueiganda vegna aðstæðna eða atvika sem kröfueigandi ber ábyrgð á, getur fullnægt greiðsluskyldu sinni með því að greiða skuldina á geymslureikning í viðskiptabanka eða sparisjóði.
Þingskjal 1043, 116. löggjafarþing 209. mál: geymslufé (almenn heimild).
Lög nr. 57 7. maí 1993.
Lög um breytingu á lögum nr. 9/1978, um geymslufé.
1. gr.
1. gr. laganna orðast svo:Hver sá, sem inna á af hendi peningagreiðslu en fær ekki greitt kröfueiganda vegna aðstæðna eða atvika sem kröfueigandi ber ábyrgð á, getur fullnægt greiðsluskyldu sinni með því að greiða skuldina á geymslureikning í viðskiptabanka eða sparisjóði.
2. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. júlí 1993.Samþykkt á Alþingi 28. apríl 1993.