Ferill 15. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1992–93. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 15 . mál.
1075. Frumvarp til laga
um breytingu á lagaákvæðum, er varða íslenskt ríkisfang, vegna aðildar að samningi um Evrópska efnahagssvæðið.
(Eftir 2. umr., 4. maí.)
1. gr.
Við lög nr. 41 2. maí 1968, um verslunaratvinnu, bætist ný grein, 18. gr., svohljóðandi:
Frá gildistöku laga um Evrópska efnahagssvæðið skulu ríkisborgarar annarra aðildarríkja Evrópska efnahagssvæðisins vera undanþegnir skilyrði um íslenskt ríkisfang samkvæmt nánari ákvæðum sem ráðherra setur með reglugerð.
Sama undanþága gildir varðandi skilyrði um heimilisfesti á Íslandi, sbr. 1. tölul. 4. gr. laga þessara.
Ríkisborgarar annarra aðildarríkja Evrópska efnahagssvæðisins skulu eigi njóta lakari aðstöðu með tilliti til undanþágu frá menntunar- eða starfsreynsluskilyrði en íslenskir ríkisborgarar, sbr. 3. tölul. 4. gr. laga þessara.
2. gr.
1. tölul. 3. gr. laga nr. 42 18. maí 1978, iðnaðarlaga, hljóðar svo:
3. gr.
Lög þessi öðlast gildi um leið og samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið öðlast gildi að því er Ísland varðar.