Ferill 187. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1992–93. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 187 . mál.
1198. Nefndarálit
um frv. til l. um bann við sölu á eignum ríkisins án lagaheimilda.
Frá 2. minni hluta efnahags- og viðskiptanefndar.
Nefndin hefur fjallað um málið og farið yfir þær umsagnir sem borist hafa. Eru þær allar jákvæðar. 2. minni hluti nefndarinnar telur afar brýnt að nú þegar séu sett í lög ákvæði um bann við sölu á eignum ríkisins án lagaheimilda. Ekki er ástæða til að bíða eftir að botn fáist í þá vinnu sem farið hefur fram á vegum fjárlaganefndar um málið. Annar minni hluti leggur því til að málið verði samþykkt.
Alþingi, 6. maí 1993.
Jóhannes Geir Sigurgeirsson,
Kristín Ástgeirsdóttir.
Steingrímur J. Sigfússon.
frsm.
Halldór Ásgrímsson.