Innflutningur á landbúnaðarvörum

80. fundur
Þriðjudaginn 01. febrúar 1994, kl. 13:39:06 (3623)


[13:39]
     Landbúnaðarráðherra (Halldór Blöndal) :
    Hæstv. forseti. Mér er mjög ljúft að svara þessari fyrirspurn. Það liggur fyrir samþykkt í ríkisstjórninni um að það verði lagt fram frv. sem tryggi þá réttarstöðu sem fólst í lagasetningunni frá 21. des. sl. Það er alveg ljóst að lagaákvæði varðandi innflutning og útflutning á búvörum, heimildir til verðjöfnunargjalda o.s.frv., verða að vera skýr og afdráttarlaus. Það er alveg ljóst. Það urðu mér auðvitað vonbrigði að ekki náðist samkomulag um að hægt yrði að leggja fram frv. snemma í síðustu viku en ég vona svo sannarlega að það fari að finnast lausn á þessu máli og heimild gefist til að leggja fram frv. til breytingar á búvörulögum.