[13:46]
Iðnaðarráðherra (Sighvatur Björgvinsson) :
Virðulegi forseti. Það er gott til þess að vita og ákveðinn stuðningur við það þegar ríkisstjórnin hefur fundið lausnina þá sé hv. þm. reiðubúinn til að greiða fyrir henni. Ég fagna því mjög og treysti því að sjálfsögðu að hann standi við orð sín. En ríkisstjórnin hefur að sjálfsögðu það frumkvæði sem hann væntir að hún hafi í málinu eins og hún hefur haft fram að þessu.