Framleiðsla og sala á búvörum

82. fundur
Fimmtudaginn 03. febrúar 1994, kl. 16:48:48 (3790)


[16:48]

     Egill Jónsson (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Hv. 5. þm. Suðurl. átti að því leyti gagnlegt erindi hér upp í þennan ræðustól að hann sannaði það með ótvíræðum hætti að hann hefur ekki enn áttað sig á því að frv. landbrh. og lögin eins og þau eru ganga lengra með tilliti til heimilda landbrh. Þetta var reyndar skýrlega tekið fram við umræðuna í landbn. í desember þó að hún væri stutt og ég vek bara athygli á því að allur Framsfl. greiddi atkvæði með einmitt þessum þætti málsins. Allur. Ég hef af sérstakri ástæðu farið yfir umræðurnar frá því í desember og það er ekki eitt orð frá hv. þm., ekki eitt einasta aðvörunarorð við þennan texta. Það er svo annað mál að framsóknarmenn hafa sína lögun og þar með þessi hv. þm. og þá snilld að verða vitur eftir á.