Framleiðsla og sala á búvörum

106. fundur
Fimmtudaginn 10. mars 1994, kl. 13:59:42 (4963)


[13:59]
     Ingibjörg Sólrún Gísladóttir (um fundarstjórn) :
    Virðulegur forseti. Vegna þess að áðan var minnst á, af einum hv. þm., fund félmn. sem boðaður var núna í hádeginu, þá vil ég að það komi fram --- og eins vegna orða forseta hér áðan um að ekki hefði verið haft samráð við forseta um þá fundarboðun --- að það var sérstaklega kannað í gær hvaða möguleikar væru á því að boða fund í félmn. í dag og þá upplýstist það að hér yrði gert fundarhlé milli kl. eitt og hálftvö og nefndin gæti þá skotið á fundi í því hléi. Annað vissum við ekki í gær þegar fundurinn var boðaður og það kom síðan ekki í ljós fyrr en á fundinum að hér væri enn verið að funda í þingsalnum. Þannig að þetta vissum við ekki betur í gær og boðuðum þess vegna þennan fund.