Framleiðsla og sala á búvörum

106. fundur
Fimmtudaginn 10. mars 1994, kl. 16:19:23 (4982)


[16:19]
     Frsm. 2. minni hluta landbn. (Gísli S. Einarsson) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Mér þykir ákaflega leitt ef hæstv. landbrh. fylgist ekki með því sem sagt er hér, enda var hann ekki mikið við. Það var vitnað til frv. sem hangir við álit 2. minni hluta. Það var það sem ekki stóðst, það samkomulag sem formenn stjórnarflokkanna gerðu sín á milli.