Framleiðsla og sala á búvörum

106. fundur
Fimmtudaginn 10. mars 1994, kl. 16:24:58 (4988)


[16:24]
     Frsm. 2. minni hluta landbn. (Gísli S. Einarsson) (andsvar) :
    Virðulegur forseti. Það koma að sjálfsögðu nýir siðir með nýjum mönnum. Þeir ágætu nýju menn láta ekkert ganga yfir sig með þá vinnu sem þeir telja að eigi að fara fram á hv. Alþingi og þess vegna liggja þessar skýringar svona eins og þær eru. Við erum sammála um lagatextann en ósammála um nefndarálitin.