Stækkun atvinnu- og þjónustusvæða á Vestfjörðum

115. fundur
Þriðjudaginn 22. mars 1994, kl. 15:16:45 (5423)


[15:16]
     Kristinn H. Gunnarsson (andsvar) :
    Virðulegur forseti. Ég vil aðeins segja það við hv. 1. þm. Vestf., af því að hann vill vísa okkur á Byggðastofnun til að fá upplýsingar og komast að málinu, að ég leitaði eftir því við Byggðastofnun að fá upplýsingar um það hvað menn væru að gera og hvaða hugmyndir væru á kreiki. Forstjóri stofnunarinnar sagði mér að hann mætti ekki láta mig hafa þær upplýsingar, þær væru trúnaðarmál.
    Á mælendaskrá á eftir er fulltrúi okkar í stjórn Byggðastofnunar og hann getur auðvitað greint frá því hvað var sýnt í stjórn Byggðastofnunar af þessu máli. En hv. 1. þm. Vestf. gæti t.d. sagt mönnum frá því í sínum andsvörum sem hann iðkar hér hvað hafi verið kynnt í stjórninni. ( MB: Í hvað?) Í stjórn Byggðastofnunar.