Framleiðsla og sala á búvörum

122. fundur
Þriðjudaginn 29. mars 1994, kl. 16:53:06 (5743)


[16:53]
     Jón Helgason (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Ég á dálítið erfitt með að átta mig á svari hæstv. ráðherra en eins og ég sagði er hér í þskj. frá einum stuðningsmanni ríkisstjórnarinnar, þskj. sem byggt er á gögnum og upplýsingum frá utanrrn., sett fram sú fullyrðing að við höfum ekki lengur heimild til þessara varna og ég teldi því að það væri alger nauðsyn að hæstv. landbrh. mótmælti því. Að vísu hefur hann tækifæri til þess með því að greiða atkvæði með brtt. við þetta frv. um að það sé annað nefndarálit sem eigi að taka mark á en ekki þetta sem þarna stendur. Ég veit ekki hvort hæstv. ráðherra ætlar að gera það en það væri þá æskilegt að hann léti á einhvern annan hátt í ljós að hann liti þessa fullyrðingu alvarlegum augum.