Fullgilding ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar um bókun 47

125. fundur
Föstudaginn 08. apríl 1994, kl. 15:00:24 (6033)


[15:00]
     Páll Pétursson (andsvar) :
    Frú forseti. Jú, einmitt. Þess vegna vakti ég athygli á þessum sérstaka þætti í greinargerðinni að ég tel að þar sé ekki verið að vinna í þeim anda sem við höfum verið að vinna undanfarið og það tel ég illa farið. En þetta er dæmi um hvernig hlutirnir þróast og hvernig Evrópubandalagið starfar.