[17:11]
Páll Pétursson :
Frú forseti. Hér er verið að bera það undir atkvæði þingmanna hvort málið skuli fá þinglega meðferð. Ég tel að það eigi að fá hana.
Á hinn bóginn er ýmislegt sem gagnrýnivert er við þessa fullgildingu. Það væri eðlilegra að málið væri bútað meira niður og ekki samþykkt með þáltill. í fjórum línum eins og hér er verið að gera. Ég segi sem sagt já. Ég vil að málið fái þinglega meðferð.