[21:47]
Ingibjörg Pálmadóttir (andsvar) :
Virðulegi forseti. Það er rétt hjá hæstv. félmrh. að það voru gerðar tillögur í þá veru að auka framkvæmdir í vegamálum þar sem sameining ætti sér stað en því miður var ekkert farið eftir því. Það urðu því engar samgöngubætur í sameinuðum sveitarfélögum, ekki enn þá því miður.