Húsaleigubætur

152. fundur
Fimmtudaginn 05. maí 1994, kl. 22:58:52 (7348)


[22:58]
     Vilhjálmur Egilsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég vil upplýsa hv. þm. Ólaf Þ. Þórðarson um það að ég hef sannarlega reynt í umfjöllun um þetta mál í mínum þingflokki að fá því framgengt að breyting á skattalögunum í samhengi við húsaleigubæturnar fengi framgöngu. Ég hef ekki fengið stuðning við þá tillögu mína og því get ég ekki stutt þetta mál vegna þess að ég tel að þetta hangi algerlega saman.