Húsaleigubætur

152. fundur
Fimmtudaginn 05. maí 1994, kl. 23:26:54 (7358)


[23:26]
     Jón Kristjánsson (andsvar) :
    Herra forseti. Ég hefði að sjálfsögðu viljað hafa meiri tíma til þess að ræða ágreininginn við sveitarfélögin í þessu máli og einnig fá það á hreint hvort hæstv. fjmrh. væri tilbúinn að endurskoða skattlagningu húsaleigutekna. Það hafa ekki enn þá komið fram við þessa umræðu hrein svör í þessu efni. Það eru þessi tvö atriði sem brtt. okkar fjallar um. Það er gert ráð fyrir því í henni að þetta fyrirkomulag verði reynt í tvö ár en það gerðum við til þess að greiða fyrir málinu.