Skuldastaða heimilanna

157. fundur
Þriðjudaginn 10. maí 1994, kl. 16:04:46 (7846)


[16:04]
     Viðskiptaráðherra (Sighvatur Björgvinsson) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég mætti hér að beiðni hæstv. forseta af tillitssemi við forseta. Ég vil taka það fram að mér finnst sá forseti sem nú situr í forsetastól stýra fundum af mikilli hógværð, skynsemi og festu og af tillitssemi við þann ágæta forseta mætti ég hér.
    Ég hef nú ekki bara hlustað á hv. þm. flytja ræður heldur horft á hann líka. Ég þarf ekki að segja fleira, virðulegi forseti.