Vegalög

29. fundur
Miðvikudaginn 03. nóvember 1993, kl. 14:17:14 (1024)


[14:17]
     Páll Pétursson (andsvar) :
    Herra forseti. Það er auðvitað verkefni okkar að breyta þessum vegalögum eða þessu frv. til vegalaga á þann hátt að reiðvegum sé þar eðlilegur sómi sýndur. Það er ekki rétt hjá hv. 5. þm. Suðurl. að þetta mál hafi ekki náð eyrum alþingismanna. Það eru ekki alþingismenn sem bjuggu þetta frv. til, það eru einungis fulltrúar frá Sjálfstfl. og Alþfl. og það er ekki samheiti yfir Alþingi.