[17:57]
Jóhann Ársælsson (andsvar) :
Virðulegur forseti. Hæstv. umhvrh. lýsti því mjög skilmerkilega hér áðan að hann væri alfarið sáttur við stefnu ríkisstjórnarinnar í þessum kvótamálum og það væri einungis um að ræða þetta 1% sem sneri að litlu bátunum sem væri vandamál í hans augum. Það er ástæða til þess að vekja athygli alþýðuflokksmanna um allt land á þessari yfirlýsingu hæstv. ráðherra vegna þess að í Alþfl. eru menn ekki á þessu máli. Þar eru menn almennt á því að ekki sé hægt að líða það að þetta kerfi verði óbreytt.