Framleiðsla og sala á búvörum

66. fundur
Föstudaginn 17. desember 1993, kl. 23:20:33 (2970)


[23:20]
     Landbúnaðarráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Ég tek því með karlmennsku eða reyni það þó það sé til niðurlægingar fyrir mig ef vel er unnið að undirbúningi þess að verðjöfnunargjöld séu á lögð. Ég held að áhyggjur hv. þm. séu alveg óþarfar. Auðvitað verður slík ákvörðun ekki tekin á síðustu stundu og fullt svigrúm til þess að landbrh. geti ákveðið verðjöfnunargjöld í tíma þó um það sé haft eðlilegt, pólitískt samráð.