Ráðstafanir í ríkisfjármálum 1994

69. fundur
Laugardaginn 18. desember 1993, kl. 16:07:59 (3084)


[16:07]
     Svavar Gestsson (andsvar) :
    Virðulegur forseti. Ég vil þakka hæstv. umhvrh. fyrir svörin og einnig játa ég þá sök á mig að það hefur örugglega farið fram hjá mér á síðasta þingi ein og ein setning og ég geri ráð fyrir að það geti verið þannig með fleiri en það er engu að síður skylda okkar auðvitað að lesa hvert einasta þingskjal í þaula. Og ég játa að ég sá þetta ekki í fyrra. Ég bendi hins vegar á að til lausnar því máli og yfirleitt umgengninni við þessa skepnu, elsta landnemann, þá væri viðeigandi að hæstv. umhvrh. hefði framvegis samráð við forseta Tófuvinafélagsins áður en frv. af þessu tagi eru flutt í þessari virðulegu stofnun.