Skattamál

71. fundur
Mánudaginn 20. desember 1993, kl. 10:51:05 (3114)

[10:51]
     Halldór Ásgrímsson :
    Virðulegur forseti. Samkvæmt þessari grein frv. er gert ráð fyrir því að hótel og gistiherbergi séu virðisaukaskattskyld. Jafnframt er gert ráð fyrir því eins og frv. er nú úr garði gert að fólksflutningar innan lands séu virðisaukaskattskyldir. En það mál mun verða tekið til sérstakrar umfjöllunar milli 2. og 3. umr. Þar sem þessi grein gerir ráð fyrir virðisaukaskattskyldu þessara atvinnugreina þá mun ég greiða atkvæði á móti þessari grein.