[10:55]
Fjármálaráðherra (Friðrik Sophusson) :
Virðulegi forseti. Ég vil einungis taka það fram að það er ekki hægt að taka aftur til 3. umr. grein sem er í frv. Hins vegar eins og öllum er ljóst sem hér eru inni og komið hefur fram áður þá kann þetta frv., m.a. vegna yfirlýsingar sem ég gaf á laugardaginn, að breytast á milli 2. og 3. umr. Þess vegna greiði ég þessari grein atkvæði.