[11:36]
Jóna Valgerður Kristjánsdóttir :
Virðulegi forseti. Hér er í raun og veru verið að taka aftur upp aðstöðugjald, þ.e. hér á að koma á í litlum mæli gjaldtöku sem byggir á veltu svipað og aðstöðugjaldið gerði. Ég tek ekki afstöðu til þess hvort menn vilja fara að búa til nýtt aðstöðugjald með þessu og greiði því ekki atkvæði.