Framleiðsla og sala á búvörum

71. fundur
Mánudaginn 20. desember 1993, kl. 15:25:48 (3152)


[15:25]
     Frsm. minni hluta landbn. (Jóhannes Geir Sigurgeirsson) (andsvar) :
    Virðulegur forseti. Það er alveg rétt. Fyrri mgr. 52. gr. er hverjum manni skiljanleg, en það er líka jafnskiljanlegt að 1. gr. frv., sem við erum að fjalla um hér, segir að þrátt fyrir 52. gr. leyfi landbrh. heimild til innflutnings á landbúnaðarvörum í samræmi við ákvæði í fríverslunarsamningum o.s.frv. Ég held því að út af fyrir sig þurfum við ekki að deila um þetta. Hitt finnst mér mikilvægara að hér sé kominn fram sá vilji meiri hlutans að þetta samráð sé haft þó svo að að mínu mati vaði meiri hlutinn þar í villu varðandi lagatúlkun.