Framleiðsla og sala á búvörum

71. fundur
Mánudaginn 20. desember 1993, kl. 15:26:42 (3153)


[15:26]
     Frsm. meiri hluta landbn. (Egill Jónsson) (andsvar) :
    Virðulegur forseti. Í 1. mgr. 1. gr., sem ég geri ráð fyrir að hv. síðasti ræðumaður hafi vitnað til, er hvergi minnst á það að 52. gr. sé numin úr gildi. Það er einungis sagt þar að landbrh. hafi heimild til innflutnings á landbúnaðarvörum í samræmi við ákvæði í fríverslunar- og milliríkjasamningum sem Ísland er aðili að. Það er hvergi minnst á 52. gr. frekar en aðrar greinar í búvörulögunum. Þess vegna standa önnur ákvæði þessarar greinar eins og annarra greina í frv. að sjálfsögðu óhögguð.