Framleiðsla og sala á búvörum

71. fundur
Mánudaginn 20. desember 1993, kl. 15:39:46 (3157)


[15:39]
     Eggert Haukdal (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Það eru alveg nýjar upplýsingar sem hæstv. landbrh. er hér að flytja okkur um þetta góða samstarf, góða samstarf utanrrh. og landbrh. að samningum um EES og GATT. Þetta er mjög fróðlegt og sannarlega vildi ég að rétt væri. En því er bara því miður ekki að heilsa og þetta veit bæði þing og þjóð. Það vita allir að utanrrh. vann með þeim hætti að hafa takmarkað samráð við fulltrúa landbrn. um þessi mál. Þegar komu ákveðin plögg að utan þá stóð landbrn. frammi fyrir að það var búið og gert að gera þar ákveðna hluti sem höfðu verið unnir án alls samráðs. Þetta vita allir og um það þarf ekki að hafa fleiri orð.