Framleiðsla og sala á búvörum

71. fundur
Mánudaginn 20. desember 1993, kl. 16:12:36 (3167)


[16:12]
     Jón Helgason (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Ég á erfitt með að skilja þetta svar hæstv. utanrrh. Ég spurði einfaldrar spurningar. Hvað var það sem hæstv. utanrrh. fékk fram í þessum samningi? Og ég get ekki séð að það sé neinn friðarspillir þó ég spyrji að því og reyni að fá skýrt svar. En eins og allir vita, var reyndar friðurinn ekki meiri en svo á sl. hausti að hæstv. fjmrh. þurfti að senda út löggæslulið sitt til þess að afnema gerðir hæstv. utanrrh.