[15:25]
Hjörleifur Guttormsson (andsvar) :
Virðulegur forseti. Í skýrslu sem hæstv. umhvrh. pantaði frá tveimur ágætum mönnum og veitti forsögnina um hvað þeir skyldu gera í sambandi við flutning á verkefnum segir, með leyfi forseta:
,,Embætti veiðistjóra samnýtir nú aðstöðu og starfsmenn með Náttúrufræðistofnun Íslands og Náttúruverndarráði. Vegna þessarar samnýtingar er ekki sjáanleg hagræðing af flutningi stjórnunarhlutverks veiðistjóra til Náttúrufræðistofnunar.``