Ferill 15. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1993. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. –
15
. mál.
15. Fyrirspurn
til sjávarútvegsráðherra um afla línubáta.
Frá Einari K. Guðfinnssyni.
Hver var heildarafli línubáta fiskveiðiárið 1992–1993?
Hvert var hlutfall línuafla af heildarbotnfiskveiði Íslendinga á þeim tíma?
Hver var þorskveiði línubáta fiskveiðiárið 1992–1993?
Hvert var hlutfall þorskveiði á línu af heildarþorskveiði Íslendinga fiskveiðiárið 1992–1993?
Hver var afli línubáta í janúar, febrúar, nóvember og desember fiskveiðiárið 1992–1993, mælt í tonnum og sem hlutfall af botnfiskafla?
Hver var þorskafli línubáta í janúar, febrúar, nóvember og desember fiskveiðiárið 1992–1993, mælt í tonnum og sem hlutfall af heildarþorskafla Íslendinga?
Skriflegt svar óskast.