Ferill 52. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1993. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 52 . mál.


55. Fyrirspurn



til dómsmálaráðherra um framkvæmd laga um veðmálastarfsemi.

Frá Guðrúnu Helgadóttur.



    Hvernig er háttað framkvæmd laga, nr. 23/1945, um heimild fyrir dómsmálaráðherra til þess að veita leyfi til veðmálastarfsemi í sambandi við kappreiðar og kappróður?
    Hvenær var síðast veitt leyfi til veðmálastarfsemi samkvæmt lögunum?
    Hve háar fjárhæðir hafa runnið til reiðvega og sjóminjasafna samkvæmt lögunum síðustu tíu árin?
    Hvaða önnur lög fjalla um það sem dómsmálaráðherra skilgreinir sem veðmálastarfsemi?