Ferill 74. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1993. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 74 . mál.


77. Fyrirspurn



til samgönguráðherra um útboð framkvæmda hjá Vegagerð ríkisins.

Frá Ólafi Þ. Þórðarsyni.



    Hvaða framkvæmdir hefur Vegagerðin boðið út frá 1983?
    Hver var kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar á hverri framkvæmd fyrir sig?
    Hver átti lægsta tilboðið hverju sinni? Ef sá aðili fékk ekki verkið er óskað eftir upplýsingum um ástæðu fyrir því.
    Hver varð raunverulegur kostnaður við hverja framkvæmd þegar allt var talið með?


Skriflegt svar óskast.