Ferill 86. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1993. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 86 . mál.


89. Frumvarp til laga



um breytingar á lagaákvæðum á sviði heilbrigðis- og tryggingamála vegna aðildar að samningi um Evrópskt efnahagssvæði.

(Lagt fyrir Alþingi á 117. löggjafarþingi 1993.)



I. KAFLI


Um breytingar á lögum um heilbrigðisstéttir.


Breytingar á læknalögum, nr. 53/1988, sbr. breytingu nr. 50/1990.


1. gr.


    1. gr. laganna orðast svo:
                  Rétt til þess að stunda lækningar hér á landi og kalla sig lækni hefur:
         
    
    sá sem fengið hefur leyfi heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, sbr. 2. og 3. gr.,
         
    
    sá sem fengið hefur staðfestingu heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra á lækningaleyfi í landi sem aðili er að samningi um Evrópskt efnahagssvæði.
                            Ráðherra skal með reglugerð setja nánari ákvæði um þá sem stunda mega lækningar hér á landi skv. 2. tölul. 1. mgr.
    2. gr. laganna orðast svo:
                  Leyfi skv. 1. tölul. 1. mgr. 1. gr. skal veita þeim sem lokið hefur prófi frá læknadeild Háskóla Íslands svo og viðbótarnámi í heilbrigðisstofnunum hér á landi eftir reglum sem ráðherra setur að fengnum tillögum læknadeildar Háskóla Íslands.
                  Viðbótarnámi skv. 1. mgr. má ljúka erlendis við heilbrigðisstofnanir sem fullnægja skilyrðum heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, læknadeildar Háskóla Íslands og landlæknis.
                  Áður en leyfi er veitt samkvæmt þessari grein skal leita umsagnar landlæknis og læknadeildar Háskóla Íslands.
                  Óheimilt er að veita manni lækningaleyfi ef 2. mgr. 68. gr. almennra hegningarlaga á við um hagi hans eða ef landlæknir eða læknadeild telja hann óhæfan vegna heilsubrests, t.d. vegna áfengis- eða eiturlyfjaneyslu, eða vegna þess að hann hafi kynnt sig af alvarlegu hirðuleysi eða ódugnaði í störfum.
    3. gr. laganna orðast svo:
                  Veita má manni, sem lokið hefur sambærilegu prófi og um getur í 1. mgr. 2. gr. í landi utan hins Evrópska efnahagssvæðis, leyfi skv. 1. tölul. 1. mgr. 1. gr. uppfylli hann skilyrði 2. gr. að öðru leyti. Áður en slíkt leyfi er veitt skal leita umsagnar læknadeildar Háskóla Íslands sem getur sett sem skilyrði að viðkomandi gangi undir próf í lögum og reglum er varða störf lækna hér á landi og sanni kunnáttu í mæltu og rituðu íslensku máli. Læknadeild Háskóla Íslands getur krafist þess að umsækjandi sanni kunnáttu sína í læknisfræði með því að gangast undir próf.
    5. gr. laganna orðast svo:
                  Læknir hefur rétt til að kalla sig sérfræðing og starfa sem slíkur hér á landi hafi:
         
    
    hann fengið til þess leyfi heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra,
         
    
    hann fengið staðfestingu heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra á sérfræðingsleyfi í landi sem aðili er að samningi um Evrópskt efnahagssvæði.
                            Ráðherra setur reglur um nám sérfræðinga að fengnum tillögum læknadeildar Háskóla Íslands.
                            Áður en leyfi skv. 1. tölul. 1. mgr. er veitt skal leita umsagnar landlæknis og nefndar sem ráðherra skipar til fjögurra ára í senn og í eiga sæti einn fulltrúi Læknafélags Íslands og tveir fulltrúar læknadeildar Háskóla Íslands og skal annar þeirra vera formaður. Varamenn skulu skipaðir með sama hætti.
                            Ráðherra skal með reglugerð setja nánari ákvæði um þá sem mega kalla sig sérfræðinga og starfa sem slíkir hér á landi skv. 2. tölul. 1. mgr.
    1. málsl. 6. gr. laganna orðast svo: Sá einn á rétt á því að kalla sig lækni og stunda lækningar sem uppfyllir skilyrði 1. gr.
    Fyrirsögn í staflið A í VII. kafla verður: Brottfall og svipting lækningaleyfis og staðfestingar á lækningaleyfi.
    Við 27. gr. bætast tvær nýjar málsgreinar, 3. og 4. mgr., svohljóðandi:
                  Nú er einstaklingur sem hér starfar á grundvelli leyfis skv. 2. tölul. 1. mgr. 1. gr. eða 2. tölul. 1. mgr. 5. gr. sviptur því leyfi og fellur þá niður heimild hans til að starfa á grundvelli þess hér á landi.
                  Ákvæðum þessa kafla skal beitt eftir því sem við á gagnvart þeim sem fengið hafa staðfestingu heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra skv. 2. tölul. 1. mgr. 1. gr. eða 2. tölul. 1. mgr. 5. gr.

Breytingar á lögum um tannlækningar, nr. 38/1985.


2. gr.


    1. gr. laganna orðast svo:
                  Rétt til þess að stunda tannlækningar hér á landi og kalla sig tannlækni hefur:
         
    
    sá sem fengið hefur leyfi heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, sbr. 2. og 3. gr.,
         
    
    sá sem fengið hefur staðfestingu heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra á tannlækningaleyfi í landi sem aðili er að samningi um Evrópskt efnahagssvæði.
                            Ráðherra skal með reglugerð setja nánari ákvæði um þá sem stunda mega tannlækningar hér á landi skv. 2. tölul. 1. mgr.
    1. mgr. 2. gr. laganna orðast svo:
                  Leyfi skv. 1. tölul. 1. mgr. 1. gr. skal veita þeim sem lokið hefur prófi frá tannlæknadeild Háskóla Íslands.
    1. mgr. 3. gr. laganna orðast svo:
                  Veita má manni, sem lokið hefur sambærilegu prófi og um getur í 1. mgr. 2. gr. í landi utan hins Evrópska efnahagssvæðis, leyfi skv. 1. tölul. 1. mgr. 1. gr. Tannlæknadeild Háskóla Íslands getur sett það skilyrði fyrir meðmælum sínum að umsækjandi sanni deildinni hæfni sína með prófi. Sé um erlendan ríkisborgara, aðra en ríkisborgara frá EES-landi, að ræða skulu þeir enn fremur sanna fullnægjandi kunnáttu sína í íslenskri tungu. Binda má leyfið við ákveðinn tíma. Leita skal umsagnar Tannlæknafélags Íslands og landlæknis.
    5. gr. laganna orðast svo:
                  Tannlæknir hefur rétt til að kalla sig sérfræðing og starfa sem slíkur hér á landi hafi:
         
    
    hann fengið til þess leyfi heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra,
         
    
    hann fengið staðfestingu heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra á sérfræðingsleyfi frá landi sem aðili er að samningi um Evrópskt efnahagssvæði.
                            Ráðherra setur reglur um nám sérfræðinga að fengnum tillögum nefndar sem hann skipar til þriggja ára í senn. Í nefndinni skulu eiga sæti deildarforseti tannlæknadeildar Háskóla Íslands og er hann jafnframt formaður, yfirtannlæknir heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytsins og aðili tilnefndur af Tannlæknafélagi Íslands. Nefnd þessi skal einnig gefa umsögn um umsóknir um sérfræðileyfi og skal við meðferð einstakra mála heimilt að kveðja til tvo sérfróða tannlækna í þeirri sérgrein sem sótt er um viðurkenningu á. Fá þeir þá einnig atkvæðisrétt í nefndinni.
                            Ráðherra skal með reglugerð setja nánari reglur um þá sem kalla mega sig sérfræðing í tannlækningum skv. 2. tölul. 1. mgr.
    Við 12. gr. laganna bætast tvær nýjar málsgreinar, sem verða 3. og 4. mgr., svohljóðandi:
                  Ákvæðum 1. og 2. mgr. svo og ákvæðum 13. gr. skal beitt eftir því sem við á gagnvart þeim sem fengið hafa staðfestingu heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra skv. 2. tölul. 1. mgr. 1. gr. eða 2. tölul. 1. mgr. 5. gr.
                  Nú er einstaklingur, sem hér starfar á grundvelli leyfis skv. 2. tölul. 1. mgr. 1. gr. eða 2. tölul. 1. mgr. 5. gr., sviptur því leyfi og fellur þá niður heimild hans til að starfa á grundvelli þess hér á landi.

Breytingar á lögum um lyfjafræðinga, nr. 35/1978,


sbr. breytingar nr. 57/1986 og 23/1991.


3. gr.

    1. gr. laganna orðast svo:
                  Rétt til þess að kalla sig lyfjafræðing og starfa sem slíkur hér á landi hefur:
         
    
    sá sem fengið hefur leyfi heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, sbr. 2. og 3. gr.,
         
    
    sá sem fengið hefur staðfestingu heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra á lyfjafræðingsleyfi í landi sem aðili er að samningi um Evrópskt efnahagssvæði.
                            Ráðherra skal með reglugerð setja nánari ákvæði um þá sem hér mega starfa á grundvelli 2. tölul. 1. mgr.
    1. málsl. 1. mgr. 3. gr. laganna orðast svo: Rétt til þess að fá leyfi skv. 1. tölul. 1. mgr. 1. gr. hefur sá einn sem lokið hefur háskólaprófi eða hliðstæðu prófi í lyfjafræði lyfsala sem metið er gilt að dómi fastráðinna kennara í lyfjafræði lyfsala við Háskóla Íslands.
    Við 13. gr. laganna bætast tvær nýjar málsgreinar, 3. og 4. mgr., svohljóðandi:
                  Nú er einstaklingur sem hér starfar á grundvelli leyfis skv. 2. tölul. 1. mgr. 1. gr. sviptur því leyfi og fellur þá niður heimild hans til að starfa hér á landi.
                  Ákvæðum þessa kafla skal beitt eftir því sem við á gagnvart þeim sem hlotið hafa staðfestingu heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra skv. 2. tölul. 1. mgr. 1. gr.
    17. gr. laganna orðast svo:
                  Veita má erlendum ríkisborgara í landi utan hins Evrópska efnahagssvæðis leyfi skv. I. og II. kafla laga þessara ef þeir fullnægja að öðru leyti þeim skilyrðum sem þar eru sett.

Breytingar á hjúkrunarlögum, nr. 8/1974,


sbr. breytingar nr. 32/1975 og 58/1984.


4. gr.


    1. gr. laganna orðast svo:
                  Rétt til þess að stunda hjúkrun hér á landi og kalla sig hjúkrunarfræðing hefur:
         
    
    sá sem fengið hefur leyfi heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, sbr. 2. gr.,
         
    
    sá sem fengið hefur staðfestingu heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra á hjúkrunarleyfi í landi sem aðili er að samningi um Evrópskt efnahagssvæði.
                            Ráðherra skal með reglugerð setja nánari ákvæði um þá sem stunda mega hjúkrun hér á landi skv. 2. tölul. 1. mgr.
    2. gr. laganna orðast svo:
                  Leyfi skv. 1. tölul. 1. mgr. 1. gr. skal veita þeim sem lokið hefur prófi í hjúkrunarfræðum frá Háskóla Íslands og Háskólanum á Akureyri.
                  Ráðherra getur og veitt hjúkrunarleyfi skv. 1. tölul. 1. mgr. 1. gr. þeim sem lokið hefur sambærilegu prófi og um getur í 1. mgr. í landi utan hins Evrópska efnahagssvæðis, enda teljist umsækjandi að öðru leyti hæfur að dómi hjúkrunarráðs.
                  Hjúkrunarráð skal skipað þremur mönnum til fjögurra ára og skal einn tilnefndur af heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti, einn af menntamálaráðuneyti og einn af Hjúkrunarfélagi Íslands.
                  Útlendingar, sem sækja um leyfisveitingu skv. 2. mgr., skulu hafa næga kunnáttu í töluðu og rituðu íslensku máli.
    Á eftir 2. mgr. 7. gr. koma tvær nýjar málsgreinar, sem verða 3. og 4. mgr., svohljóðandi:
                  Ákvæðum 1. og 2. mgr. skal eftir því sem við á beitt gagnvart þeim sem hlotið hafa staðfestingu heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra skv. 2. tölul. 1. mgr. 1. gr.
                  Nú er einstaklingur, sem hér starfar á grundvelli leyfis skv. 2. tölul. 1. mgr. 1. gr., sviptur því leyfi og fellur þá niður heimild hans til að starfa hér á landi.

Breytingar á ljósmæðralögum, nr. 67/1984.


5. gr.


    1. gr. laganna orðast svo:
                  Rétt til þess að kalla sig ljósmóður og stunda ljósmóðurstörf hér á landi hefur:
         
    
    sá sem fengið hefur leyfi heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, sbr. 2. gr.,
         
    
    sá sem fengið hefur staðfestingu heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra á ljósmæðraleyfi í landi sem aðili er að samningi um Evrópskt efnahagssvæði.
                            Ráðherra skal með reglugerð setja nánari ákvæði um þá sem stunda mega ljósmóðurstörf hér á landi skv. 2. tölul. 1. mgr.
    2. gr. lagnna orðast svo:
                  Leyfi skv. 1. tölul. 1. mgr. 1. gr. skal veita þeim sem lokið hefur prófi frá Ljósmæðraskóla Íslands.
                  Ráðherra getur veitt öðrum leyfi er lokið hafa jafngildu námi erlendis í löndum utan EES-svæðisins að fenginni umsögn ljósmæðraráðs sem ráðherra skipar. Ljósmæðraráð skal skipað þremur aðilum til fimm ára og skal einn tilnefndur af heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti, einn af Ljósmæðrafélagi Íslands og einn af Ljósmæðraskóla Íslands.
                  Útlendingar, sem sækja um leyfisveitingu skv. 1. tölul. 1. mgr. 1. gr., skulu hafa næga kunnáttu í töluðu og rituðu íslensku máli.

Breytingar á lögum um iðjuþjálfun, nr. 75/1977,


sbr. breytingu nr. 23/1991.


6. gr.


    2. gr. laganna orðast svo:
                  Leyfi skv. 1. gr. skal veita íslenskum ríkisborgurum og ríkisborgurum í EES-ríki sem lokið hafa prófi frá skóla sem viðurkenndur er fullkominn iðjuþjálfaskóli af heilbrigðisstjórn þess lands sem námið er stundað í. Leita skal umsagnar stjórnar námsbrautar í iðjuþjálfun við Háskóla Íslands og landlæknis áður en leyfi er veitt.
    3. gr. laganna orðast svo:
                  Nú uppfyllir maður skilyrði 2. gr. að öðru leyti en því að hann hefur hvorki íslenskt ríkisfang né ríkisfang í EES-ríki og er þá ráðherra heimilt að veita honum ótakmarkað eða tímabundið leyfi til að stunda iðjuþjálfun, enda hafi stjórn námsbrautar í iðjuþjálfun við Háskóla Íslands og landlæknir mælt með leyfisveitingunni.

Breytingar á lögum um sjúkraþjálfun, nr. 58/1976,


sbr. breytingu nr. 23/1991.


7. gr.


    2. gr. laganna orðast svo:
                  Leyfi skv. 1. gr. skal veita íslenskum ríkisborgurum og ríkisborgurum í EES-ríki sem lokið hafa prófi frá skóla sem viðurkenndur er fullkominn sjúkraþjálfunarskóli af heilbrigðisstjórn þess lands sem námið er stundað í. Leita skal umsagnar stjórnar námsbrautar í sjúkraþjálfun við Háskóla Íslands og landlæknis áður en leyfi er veitt.
    3. gr. laganna orðast svo:
                  Nú uppfyllir maður skilyrði 2. gr. að öðru leyti en því að hann hefur hvorki íslenskt ríkisfang né ríkisfang í EES-ríki og er þá ráðherra heimilt að veita honum ótakmarkað eða tímabundið leyfi til að stunda sjúkraþjálfun, enda hafi stjórn námsbrautar í sjúkraþjálfun við Háskóla Íslands og landlæknir mælt með leyfisveitingunni.

Breytingar á lögum um sjóntækjafræðinga, nr. 17/1984,


sbr. breytingu nr. 23/1991.


8. gr.


    2. gr. laganna orðast svo:
                  Leyfi skv. 1. gr. skal veita íslenskum ríkisborgurum og ríkisborgurum í EES-ríki sem lokið hafa prófi frá skólum sem viðurkenndir eru sem slíkir af heilbrigðisstjórn þess lands sem námið er stundað í. Leita skal umsagnar prófessorsins í augnlækningum við Háskóla Íslands, félags sjóntækjafræðinga og landlæknis áður en leyfið er veitt.
    3. gr. laganna orðast svo:
                  Nú uppfyllir maður skilyrði 2. gr. að öðru leyti en því að hann hefur hvorki íslenskt ríkisfang né ríkisfang í EES-ríki og er þá ráðherra heimilt að veita honum ótakmarkað eða tímabundi leyfi að fenginni umsögn sömu aðila og um getur í 2. gr.

II. KAFLI

Um breytingar á lagaákvæðum á vátryggingarsviði.

Breyting á lögum um ófriðartryggingar, nr. 2/1944,

sbr. breytingu nr. 10/1983.

9. gr.

    3. mgr. 1. gr. laganna fellur niður.

Breytingar á lögum um innlenda endurtryggingu,


stríðsslysatryggingu skipshafna o.fl.,


nr. 43/1947, sbr. breytingar nr. 61/1962,


5/1964, 29/1977, 10/1983 og 45/1993.


10. gr.


    15. gr. laganna orðast svo:
    Ráðherra getur ákveðið að skylt sé að tryggja hjá vátryggingafélagi fyrir stríðsslysum skipshafnir á öllum íslenskum skipum og bátum. Vátryggingarskylda hvílir á útgerðarmanni skipsins og má ekki færa þeim sem vátryggðir eru iðgjöldin til útgjalda. Gildir það jafnt þótt skipverji taki aflahlut í stað kaups.

Brottfall laga um ávöxtun fjár tryggingafélaga,


nr. 17/1964, sbr. breytingar nr. 26/1973 og 10/1983.


11. gr.


    Lög um ávöxtun fjár tryggingafélaga, nr. 17/1965, sbr. breytingar nr. 26/1973 og 10/1983, falla úr gildi.

Breytingar á lögum um búfjártryggingar,


nr. 20/1943, með síðari breytingum.


12. gr.


    2. gr. laganna orðast svo:
                  Verkefni búfjártryggingadeildar er að selja og annast vátryggingu búfjár gegn vanhöldum og slysum, sbr. 3. gr.
    Í 1. málsl. 3. gr. laganna falli niður orðin: í deildinni.
    1. málsl. 1. mgr. 4. gr. laganna orðast svo: Heimilt er að tryggja gegn venjulegum vanhöldum og slysum.
    2. mgr. 4. gr. laganna fellur niður.
    8. gr. laganna fellur niður.
    9. gr. laganna fellur niður.
    1. og 2. mgr. 11. gr. laganna falla niður og 3. mgr. 11. gr., sem verður 1. mgr., verður svohljóðandi:
                  Nú verður ágreiningur milli vátryggingafélags og tjónþola um rétt og skyldu til bóta eða um upphæð bótanna og skal ágreiningnum þá skotið til gerðardóms þriggja manna. Nefni til sinn mann hvor aðili, en viðkomandi dómari oddamanninn. Úrskurður gerðardómsins er fullnaðarúrskurður. Skaðabætur greiðast ekki af hendi fyrr en tjón er að fullu sannað og metið.
    13. gr. laganna fellur niður.
    14. gr. laganna orðast svo:
                  Landbúnaðarráðherra getur með reglugerð, að fenginni umsögn Tryggingaeftirlitsins, sett nánari ákvæði um framkvæmd laga þessara.

Breyting á umferðarlögum, nr. 50/1987,


með síðari breytingum.


13. gr.


    1. mgr. 91. gr. laganna orðast svo:
    Greiðsla á bótakröfu vegna tjóns, sem hlýst af notkun skráningarskylds vélknúins ökutækis, skal vera tryggð með ábyrgðartryggingu hjá vátryggingafélagi sem er viðurkennt eða skráð af dómsmálaráðherra.

III. KAFLI

Um breytingar á lögum um atvinnuleysistryggingar,

nr. 93/1993.

14. gr.

    2. tölul. 1. mgr. 16. gr. laganna orðast svo:
         2. Dvelja hér á landi eða eru í atvinnuleit í EES-landi.
    Á eftir 41. gr. kemur ný grein, sem verður 41. gr. a, svohljóðandi:
                  Atvinnuleysistryggingasjóði er heimilt fyrir hönd þar til bærrar stofnunar í EES-landi að greiða ríkisborgara í EES-ríki, sem hingað kemur í atvinnuleit, atvinnuleysisbætur, enda endurgreiði sú stofnun sjóðnum þær fjárhæðir sem þannig eru inntar af hendi.

IV. KAFLI

Gildistökuákvæði.

15. gr.

    Lög þessi öðlast gildi um leið og EES-samningurinn. Þegar lög þessi hafa hlotið staðfestingu skal fella ákvæði þeirra inn í meginmál þeirra laga sem þau breyta og gefa þau lög út svo breytt.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Vegna skuldbindinga Íslands samkvæmt samningnum um Evrópskt efnahagssvæði, sem undirritaður var 2. maí 1992, er nauðsynlegt að breyta ýmsum lögum á sviði heilbrigðis- og tryggingamála. Í upphafi 116. löggjafarþings var lagt fram frumvarp til laga um breytingar á lagaákvæðum á sviði heilbrigðis- og tryggingamála vegna aðildar að samningi um Evrópskt efnahagssvæði.
    Frumvarpið náði ekki fram að ganga og er því endurflutt í nokkuð breyttri mynd. Eftirtaldar breytingar hafa verið gerðar á frumvarpinu:
    Breytingar á lögum um brunatryggingar utan Reykjavíkur, nr. 59/1954, og um brunatryggingar í Reykjavík, nr. 25/1954, munu lagðar fram í sérfrumvarpi og því felldar burtu hér.
    Breytingar á lögum um Brunabótafélag Íslands, nr. 91/1955, hafa og verið felldar burtu þar sem nýtt lagafrumvarp um Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Íslands verður lagt fram í upphafi þings.
    Breytingar á lögum um eiturefni og hættuleg efni, nr. 52/1988, hafa verið felldar burtu og munu fluttar síðar í sérstöku frumvarpi.
    Breytingar á lyfjalögum, nr. 108/1984, og lögum um lyfjadreifingu, nr. 76/1982, hafa verið felldar burtu þar sem frumvarp til lyfjalaga verður endurflutt strax í upphafi þings. Það frumvarp hefur að geyma nauðsynlega aðlögun vegna reglna EES-svæðisins.
    Frumvarpið skiptist nú í fjóra kafla og hefur að geyma breytingartillögur við fjórtán lög. Þessi lög eru:
    Ýmis lög um heilbrigðisstéttir.
         
    
    Læknalög, nr. 53/1988, með síðari breytingu.
         
    
    Hjúkrunarlög, nr. 8/1974, með síðari breytingum.
         
    
    Tannlæknalög, nr. 38/1985.
         
    
    Ljósmæðralög, nr. 67/1984.
         
    
    Lög um lyfjafræðinga, nr. 35/1978, með síðari breytingum.
         
    
    Lög um iðjuþjálfun, nr. 75/1977, með síðari breytingu.
         
    
    Lög um sjúkraþjálfun, nr. 58/1976, með síðari breytingu.
         
    
    Lög um sjóntækjafræðinga, nr. 17/1984, með síðari breytingu.
    Öllum þessum lögum þarf að breyta vegna ákvæða III. hluta EES-samningsins, sbr. VII. viðauka hans um gagnkvæma viðurkenningu á starfsmenntun og hæfi. Hér hafa þrenn lög bæst við frá fyrrnefndu yfirliti utanríkisráðuneytisins, lög um iðjuþjálfun, sjúkraþjálfun og sjóntækjafræðinga. Í ljós kom við nánari skoðun að vegna ákvæða þessara laga um íslenskt ríkisfang sem skilyrði leyfisveitingar þarf að rýmka þau gagnvart ríkisborgurum á EES-svæðinu.
    Lög um atvinnuleysistryggingar, nr. 96/1990, með síðari breytingum.
    Lögunum þarf að breyta vegna ákvæða í III. hluta EES-samningsins, sbr. VI. viðauka hans um félagslegt öryggi.
    Ýmis lög á vátryggingarsviði.
         
    
    Lög um ófriðartryggingar, nr. 2/1944, sbr. breytingu nr. 10/1983.
         
    
    Lög innlenda endurtryggingu, stríðsslysatryggingu o.fl., nr. 43/1947, með síðari breytingum.
         
    
    Lög um búfjártryggingar, nr. 20/1943, með síðari breytingum.
         
    
    Lög um ávöxtun fjár tryggingafélaga, nr. 17/1964, með síðari breytingum.
         
    
    Umferðarlög, nr. 50/1987, með síðari breytingum.
    Lögum þessum þarf að breyta vegna ákvæða í III. hluta EES-samningsins, sbr. IX. viðauka hans um fjármálaþjónustu. Lög um búfjártryggingar og umferðarlög heyra undir landbúnaðarráðuneyti og dóms- og kirkjumálaráðuneyti. Í samráði við þessi ráðuneyti var ákveðið að breytingar á lögunum yrðu gerðar í þessu frumvarpi. Þessu til viðbótar kom í ljós að vegna vátryggingarreglna EB sýnist þurfa að breyta lögum um greiðslu vátryggingaiðgjalda fiskiskipa sem heyra undir sjávarútvegsráðuneytið og loftferðalögum sem heyra undir samgönguráðuneytið. Breytingar á þessum lögum munu gerðar í frumvörpum á vegum þessara ráðuneyta.
    Í frumvarpið vantar breytingar á lögum um bátaábyrgðarfélög, nr. 18/1976, með síðari breytingum, lögum um Samábyrgð Íslands á fiskiskipum, nr. 37/1978, lögum um vátryggingarstarfsemi, nr. 50/1978, og lögum um almannatryggingar, nr. 67/1971, með síðari breytingum. Nauðsynlegar breytingar á þessum lögum vegna samningsins um EES verða bornar fram í sérstökum frumvörpum.
    Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra mun því við upphaf 117. löggjafarþings leggja fram sjö lagafrumvörp vegna EES-samningsins til viðbótar við það frumvarp sem hér liggur fyrir. Þessi frumvörp eru:
    Frumvarp til laga um breytingu á lögum um bátaábyrgðarfélög, nr. 18/1976, með síðari breytingum, og lögum um Samábyrgð Íslands á fiskiskipum, nr. 37/1978, með síðari breytingu.
    Frumvarp til laga um vátryggingarstarfsemi.
    Frumvarp til laga um val á vátryggingarsamningalögum.
    Frumvarp til laga um almannatryggingar.
    Frumvarp til laga um félagslega aðstoð.
    Frumvarp til laga um brunatryggingar.
    Frumvarp til laga um Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Íslands.

Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.


Um I. kafla.


    Þessi kafli breytir átta lögum um heilbrigðisstéttir og eru breytingarnar afleiðing af reglum Evrópubandalagsins um staðfesturétt og frjálsa för fólks.

Um 1.–5. gr.


    Hjá Evrópubandalaginu eru í gildi sérstakar tilskipanir um fimm heilbrigðisstéttir, lækna (75/362 og 75/363), tannlækna (78/686 og 78/687), hjúkrunarfræðinga (77/452 og 77/453), ljósmæður (80/154 og 80/155) og lyfjafræðinga (85/432 og 85/433). Flestum þessum tilskipunum hefur verið breytt. Tilskipanirnar kveða á um skyldu aðildarríkja til að viðurkenna prófskírteini, vottorð og annan vitnisburð um formlega menntun og hæfi sem önnur aðildarríki veita ríkisborgurum aðildarríkja í samræmi við þessar tilskipanir. Þetta þýðir að starfsleyfi lækna, tannlækna, hjúkrunarfræðinga, ljósmæðra og lyfjafræðinga í einu EB-ríki skulu gilda í öðru aðildarríki.
    Samkvæmt EES-samningnum skal þessum reglum EB beitt á EES-svæðinu. Af því leiðir að hér á landi þarf að breyta 1. gr. í lögum þessara fimm heilbrigðisstétta því þar segir að sá einn megi starfa hér á landi í viðkomandi starfsstétt sem til þess hefur leyfi heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra.
    Í frumvarpinu er því gerð breyting á 1. gr. allra þessara laga og skýrt tekið fram að innan viðkomandi heilbrigðisstéttar hér á landi geti starfað annars vegar þeir sem hafa til þess leyfi heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra og hins vegar þeir sem fengið hafa staðfestingu heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra á leyfi sínu í EES-ríki. Gert er ráð fyrir að með reglugerð verði nánari reglur settar um hvernig heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið standi að þessari staðfestingu.
    Gangur mála yrði þannig að ríkisborgari í EES-ríki með lækningaleyfi, t.d. í Þýskalandi, sem hygðist koma hingað og hefja hér lækningar, þarf fyrst að snúa sér til heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins og sýna þar þau skjöl sem staðfesta lækningaleyfi hans í Þýskalandi. Að lokinni skoðun ráðuneytisins á réttmæti skjalanna fengi viðkomandi síðan staðfestingu á því að hann mætti starfa sem læknir hér á landi. Þar með væri honum frjálst að starfa hér sjálfstætt sem læknir, t.d. opna stofu. Sömuleiðis gæti hann sótt um stöðu læknis, t.d. á sjúkrahúsum eða á heilsugæslustöðvum. Staðfestingin gefur honum hins vegar engan rétt til stöðuveitingar. Atvinnurekandi gæti t.d. hafnað honum á grundvelli engrar eða lélegrar íslenskukunnáttu.
    Í læknalögum og lögum um tannlækningar er að finna ákvæði um sérfræðingsleyfi sem sömu reglur gilda um. Af þeim sökum þarf að breyta 5. gr. læknalaga og 5. gr. tannlæknalaga. Rétt er hins vegar að benda á að í læknisfræði eru viðurkenndar sérgreinar mun færri hjá EB en hér á landi. Réttur til staðfestingar á sérgrein nær eingöngu til sérgreina sem eru sambærilegar milli landanna.
    Gerðar eru frekari breytingar á 5. gr., sbr. 2. gr. læknalaga, en nauðsynlegar eru samkvæmt ákvæðum EES-samningsins. Samkvæmt þessum ákvæðum skal sérstök þriggja manna nefnd fjalla um umsóknir um almennt lækningaleyfi en læknadeildin gefa umsögn um umsóknir um sérfræðingsleyfi. Í framkvæmd mun þessi nefnd gefa umsögn um hvort tveggja. Ástæðulaust þykir að hafa sérstaka nefnd í umsögnum um umsóknir vegna almenns lækningaleyfis og ákvæðið um hana því fært yfir í 5. gr. laganna og hún þar gerð að umsagnaraðila.
    Þá er og gerð viðbótarbreyting á 5. gr. tannlæknalaga sem ekki tengist EES-samningum. Þar er um að ræða að nefnd þeirri, sem fær til umsagnar sérfræðiumsóknir tannlækna, verður ekki lengur skylt heldur eingöngu heimilt að kveðja til tvo sérfróða tannlækna í þeirri sérgrein sem sótt er um.
    Þá er talið nauðsynlegt að skýrt komi fram í lögunum um þessar fimm heilbrigðisstéttir að sé ríkisborgari í EES-landi, sem hér starfar á grundvelli staðfestingar á leyfi í öðru EES-landi, sviptur leyfi sínu þar fellur niður heimild hans til að starfa hér á landi. Sömuleiðis er talið nauðsynlegt að taka skýrt fram að brjóti EES-borgari, sem hér starfar á grundvelli staðfestingar, af sér í þeim mæli að það mundi varða hann leyfissviptingu hefði hann leyfi heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra getur ráðherra svipt hann staðfestingunni sem starf hans hér á landi grundvallast á.

Um 6.–8. gr.


    Í þrennum lögum um heilbrigðisstéttir, lögum um iðjuþjálfun, sjúkraþjálfun og lögum um sjóntækjafræðinga er það gert að skilyrði fyrir starfsleyfi hér á landi að viðkomandi sé íslenskur ríkisborgari. Þeir sem ekki eru íslenskir ríkisborgarar geta fengið leyfi en með öðrum skilyrðum.
    Reglur EB krefjast þess að engum sé mismunað á grundvelli ríkisfangs. Því er nauðsynlegt að breyta þessum þrennum lögum og tryggja að með umsóknir ríkisborgara í EES-ríki um starfsleyfi í þessum heilbrigðisstéttum sé farið á sama hátt og umsóknir Íslendinga.
    Þessum þrennum lögum var öllum breytt með lögum nr. 23/1991, um breytingu á lagaákvæðum er varða fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri o.fl. Þar var gert ráð fyrir að erlendur ríkisborgari, sem hér hefði átt lögheimili í eitt ár, skyldi undanþeginn skilyrði um íslenskt ríkisfang. Frumvarp þetta breytir þessu og takmarkar ákvæðið frá því sem breytingin með lögum nr. 23/1991 gerði ráð fyrir. EES-ríkisborgarar munu njóta sama réttar til löggildingar og Íslendingar en aðrir útlendingar falla undir hið almenna ákvæði laganna um erlenda ríkisborgara. Rýmkun laga nr. 23/1991 þykir óþarflega mikil og því ákveðið að erlendir ríkisborgarar, aðrir en EES-borgarar, skuli sæta óbreyttum reglum frá því sem var fyrir gildistöku laganna nr. 23/1991.

Um II. kafla.


    Vegna ákvæða í III. hluta EES-samningsins um frjálsa fólksflutninga, frjálsa þjónustustarfsemi og frjálsa fjármagnsflutninga þarf að breyta ýmsum ákvæðum íslenskra laga á vátryggingarsviði. Breytingarnar lúta að því að ryðja úr vegi einkarétti einstakra vátryggingafélaga til að selja tilteknar tryggingar, skattalegum ívilnunum sem sum þessara félaga njóta umfram önnur félög og ákvæðum um staðfestingu ráðherra á vátryggingafélögum eða iðgjöldum svo nokkuð sé nefnt.
    Nokkur þeirra laga, sem hafa að geyma vátryggingarákvæði sem þarf að breyta vegna EES-samningsins, heyra undir önnur ráðuneyti. Tvennum þeirra er breytt með þessu frumvarpi í samráði við viðkomandi ráðuneyti. Um er að ræða umferðarlög sem heyra undir dómsmálaráðuneytið og lög um búfjártryggingar sem heyra undir landbúnaðarráðuneytið.
    Einnig sýnist þurfa að fella niður síðasta málslið 1. mgr. 137. gr. laga um loftferðir, nr. 34/1964, með síðari breytingum, og breyta orðalagi í 2. mgr. 2. gr. laga um greiðslu vátryggingariðgjalda fiskiskipa, nr. 17/1976, með síðari breytingu. Nauðsynleg breyting á loftferðalögum mun fylgja heildarendurskoðun þeirra sem unnið er að í samgönguráðuneytinu. Sjávarútvegsráðuneytið mun sjálft bera fram nauðsynlegt lagafrumvarp vegna breytinga á lögum um vátryggingariðgjald fiskiskipa.

Um 9. gr.


    Hér er gerð lítils háttar breyting á lögum um ófriðartryggingar, nr. 2/1944, með síðari breytingum. Felld er niður 3. mgr. 1. gr. en samkvæmt henni nær ófriðartryggingin ekki til fjármuna í landinu sem eru í eigu erlendra manna eða stofnana nema slíkir aðilar séu heimilisfastir hér á landi. Þetta ákvæði stangast á við hin almennu ákvæði EES-samningsins um jafnan rétt ríkisborgara svæðisins án tillits til þjóðernis.

Um 10. gr.


    Með lögum nr. 45/1993, um stofnun hlutafélags um Íslenska endurtryggingu, voru felldar úr gildi 1.–14. gr. og 28. gr. laga nr. 43/1947. Í breytingu þeirri, sem hér er gerð á 15. gr. laganna, felst að ákvæði II. og III. kafla laganna verða almenns eðlis og munu framvegis eiga við um stríðsslysatryggingar hvar sem þær eru teknar.

Um 11. gr.


    Lagt er til að lög um ávöxtun fjár tryggingafélaga, nr. 17/1964, með síðari breytingum, verði felld úr gildi. Lögin kveða á um skyldu líftryggingafélaga að verja tilteknum hluta ráðstöfunarfjár tryggingasjóðs líftrygginga til kaupa á tilteknum bréfum af Húsnæðisstofnun ríkisins og setur félagsmálaráðuneytið nánari reglur um framkvæmdina. Ráðstöfunarfé af þessu tagi hefur nánast ekkert verið þar eð lífeyristryggingar hafa ekki náð teljandi útbreiðslu hér á landi. Lögin hafa því ekki haft mikla þýðingu. Ekki mun verða heimilt á EES-svæðinu að skylda vátryggingafélög til að ráðstafa ráðstöfunarfé sínu með þessum hætti.

Um 12. gr.


    Hér er gerð breyting á lögum um búfjártryggingar, nr. 20/1943, með síðari breytingum. Breytingin lýtur að því að afnema einkarétt búfjártryggingadeildar Brunabótafélags Íslands á þeim tryggingum sem lögin mæla fyrir um. Því fylgja allnokkrar breytingar á lögunum.
    Lög þessi heyra undir landbúnaðarráðuneytið en í samráði við það er þeim breytt í tengslum við aðrar breytingar á lögum á vátryggingarsviði til að tryggja betri yfirsýn yfir nauðsynlegar breytingar á lagaákvæðum á vátryggingarsviði vegna EES-samningsins.

Um 13. gr.


    Hér er gerð breyting á umferðarlögum, nr. 50/1987, með síðari breytingum. Breytingin felst í því að vátryggingafélag, sem annast að greiðsla á bótakröfu vegna tjóns sem hlýst af notkun skráningarskylds vélknúins ökutækis, skuli vera viðurkennt eða skráð af dómsmálaráðherra. Í gildandi lögum er eingöngu gert ráð fyrir að félögin séu viðurkennd. Vegna breytinga á reglum um vátryggingarstarfsemi er nauðsynlegt að gera ráð fyrir að félögin geti einnig verið skráð af dómsmálaráðherra.
    Umferðarlögin heyra undir dómsmálaráðuneytið en í samráði við það er ákvæðinu breytt hér í tengslum við aðrar breytingar á lögum á vátryggingarsviði. Þannig fæst betri yfirsýn yfir nauðsynlegar lagabreytingar á þessu sviði vegna EES-samningsins.

Um 14. gr.


    Nauðsynlegt er að gera nokkrar breytingar á lögum um atvinnuleysistryggingar vegna EES-samningsins. Lögin gera nú ráð fyrir að greiðsla atvinnuleysistryggingabóta sé bundin við dvöl hér á landi. Þessu þarf að breyta því reglur EB, sem verða reglur EES-svæðisins, gera ráð fyrir að fari atvinnulaus einstaklingur í atvinnuleit innan svæðisins beri landinu, þar sem hann á rétt á atvinnuleysisbótum, að greiða honum áfram bætur þann tíma sem honum er atvinnuleitin heimil, eða þrjá mánuði. Sömuleiðis verður að heimila Atvinnuleysistryggingasjóði að hafa milligöngu um greiðslu atvinnuleysistryggingabóta til þeirra sem með þessum hætti komu hingað til lands í atvinnuleit því reglur EB gera ráð fyrir að stofnun í dvalarlandinu geti annast greiðslu bótanna á kostnað þar til bærrar stofnunar í landinu sem viðkomandi kom frá.

Um 15. gr.


    Breytingar á lagaákvæðum, sem tengjast gildistöku EES-samningsins, eiga að ganga í gildi um leið og samningurinn. Meðan hann hefur ekki verið staðfestur þykir því eðlilegt að hafa gildistökuákvæði laganna skilyrt með þeim hætti sem hér kemur fram. Jafnframt þykir nauðsynlegt að hafa í lögunum endurútgáfuheimild á lögum þeim sem þau eru að breyta.