Ferill 93. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1993. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. –
93
. mál.
96. Fyrirspurn
til iðnaðarráðherra um kostnað og umfang rannsókna á vatnaflutningum til Fljótsdals.
Frá Tómasi Inga Olrich.
Hve umfangsmiklar rannsóknir hafa farið fram á vegum Landsvirkjunar, Orkustofnunar og annarra opinberra aðila vegna hugmynda um að veita Jökulsá á Fjöllum til Fljótsdals og byggja vatnsorkuver austan Arnardals og í Fljótsdal?
Hver er kostnaður við þessar athuganir?
Hve háðar eru áætlanir um orkuflutninga um sæstreng til Englands eða meginlands Evrópu hugmyndum um að veita Jökulsá á Fjöllum til Fljótsdals?
Skriflegt svar óskast.